Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Leit

Könnun

Borđaru Skyrskonsu?

NÝTT BLOGG!!

27. október 2006 klukkan 05:35
Sælt veri fólkið..
Langt síðan síðast. Núna síðustu daga hef ég verið veikur og gaman. Sem sagt ekki gaman. En allavega, þá er árshátíðarball í kvöld í Brekkuskóla, og Svitabandið spilar, allir að mæta takk.
En já, aftur að lífinu og tilverunni. Það að vera veikur er ömurlegur hlutur..
EKKERT að gera. En allavega.. Í dag vaknaði ég um 11 leitið, fékk mér að borða. Og fór í tölvuna. Síðan fékk ég mér aftur að borða og þá fór aftur í tölvuna. Síðan koma Hallur um 16.30 leitið ? Ekki hugmynd. En allavega, þá brenndi ég handa honum geisladisk *oft að pæla af hverju þeir eru ekki með leisersjóv?*  sem að innihélt marga víðþekkta smelli í metal-heiminum. Síðan er ég bara búinn að vera á éta hálsmola núna síðustu tvo daga, og drekka töfraseiði.
Núúh.. Æji shit, ég hef aldrei neitt að segja.. >_<    Iss! Fór á snjóbretti á þriðjudeginum, ýkt sveitt stuð þar á bæ! Og já.. Það er eiginlega allt, allt í bili allavega. Kannski að ég fari að reyna að lífga uppá síðuna með fáeinum bloggum ?
Takk fyrir mig, Sverrir Steinarsson.

P.S. Mig langar að minna á ballið í kvöld! Og að ég á afainniskó!
Takkogbless!
Sverrir
7 athugasemdir

Halló

10. september 2006 klukkan 22:52
Jæja, þá er víst komið að nýju bloggi. Það hefur voða lítið skeð síðan síðast. Nema ég var einn heima um helgina, því ma og pa fóru suður í einhverja giftingu. Nú, á föstudaginn fór ég á eitthvað skautadiskó með félagsmiðstöðvunum, sem var fínt. Eftir það fór ég heim og fór bara eitthvað í tölvuna, og síðan hringdi ég í Árna og fór til hans. Síðan um 01:10 leitið lögðum við uppí leiðangur. Útí Kjarna...
Það var án efa, fýluferð! Við fórum á tveim jafnskjótum og komum rétt um kortér í 2. Þá voru allir að fara, þannig að ég, Árni og Andri, fórum bara aftur í bæinn. >_<
Þar fór maður bara heim og fór að horfa á TíVí-ið. Síðan sofnaði ég um 4 leitið. Síðan koma laugardagurinn, og það var fínn dagur. Vaknaði um hádegisleitið, fór og fékk mér að éta. Síðan fór ég út með hvuttann, og eftir það fór ég til Rúnars. Við fórum út að hjóla, sem var fínt. Við hjóluðum um nánast til allan bæinn, og þá vorum við orðnir eilítið svangir. Svo við ákváðum að fara á Olís og fá okkur eitt stykki pölsu. Þar var einn steiktasti afgreiðslu gaur sem að ég hef séð.

*STORY TIME!*

Ég bað um eitt stykki pölsu með steiktum lauk. Hann fór með skeiðina ofan í hráa laukinn, og þá ræskti ég mig og sagði aðeins hærra, STEIKTAN. Og hann segir, Já ok. Og þegar hann var að fara með skeiðina ofan í þann steikta, segir hann. "Heyrðu það þarf að fylla á steikta laukinn." og það tók hann dágóðann tíma að leita að lauknum. Síðan er það var búið setti hann steikta laukinn á og spurði mig hvort ég vildi hráann ofan-á. Og ég segi nei. Og þá var komið að Rúnari, hann segist vilja pölsu með hráum og steiktum, og án gríns notaði gaurinn 4 skeiðar af hvorum lauk og setti það allt saman á pylsuna. Og síðan voru þessar pölsur étnar og fórum við síðan heim til Rúnars.

*END*

Síðan ákváðum við að fara út að hjóla aftur o.s.frv. Síðan fór ég heim uppúr hálf átta. Og beint út með hundinn minn. Síðan pantaði ég mér 15" Domino's Pepperoni Veislu *mmmmm* og 2L af kóki. Þegar þetta var svo allt komið heim, fór maður bara að éta pizzuna og varð mjög saddur, get nú ekki sagt annað. Nú eftir það var ég bara að horfa á sjónvarpið.
Þá rann upp dagurinn í dag! Sunnudagur, eins og yfirleitt var 57 m/sek. Þá var maður bara inni þangað til að maður taldi í sig kjark til að fara út með hundinn. >_<    Það var russalegt stuð úti, eða svona...    Og svo þegar maður kom inn lagaði ég aðeins til svo að það væri ekki allt í rúst þegar ma og pa koma. Þar á eftir horfði ég á byrjuninna á Star Wars, hætti því síðan MJÖG fljótlega og fór í tölvuna. Síðan skrifaði ég þetta skemmtilega blogg, og hér með set ég punktinn.
 
 -Sverrir
Sverrir
10 athugasemdir

7. september!

08. september 2006 klukkan 04:47
Góðan daginn, núna er ég ekki sá glaðasti!
Ég er búinn að vera að reyna að redda íPoddinum mínum núna í allt kveld, fór reyndar á opið hús í milli tíðinni! Og þar var bara fínt, var svokallað "vídjókvöld" og horfðum á myndina "She's the man" sem er ágæt. En núna er ég heima að reyna fiksa íPoddinn og að horfa á heimildarmynd um Evil Knevil. Hann er maðurinn. En síðan er ég í ferðatölvunni sem ég nota örsjaldan, og þar með er erfitt að laga íPoddinn... Útaf því að það er GAMALT version að iTunes og margt fleira pirrandi stöff!
Síðan er ég að vonast eftir því að ég komist á starfslista, svona uppá gamanið. :P En allavega er ég að hórfa á mynd sem heitir Open Water, og hún er svona allt í læ. Gæti samt alveg verið betri. Úff, samt er ég geðveikt þreyttur og gæti farið að sofa, en ég bara nenni því ekki. Shit maður! Það var par skilið eftir í myndinni, og núna er það bara úta á miðju hafi... :O
En þetta er blogg, er steikt stutt, útaf því að ég bara hef ekki frá neinu að segja. Þannig að ég ætla að fara bara að einbeita mér að íPoddinumm og sjónvarpinu. Svo góða nótt... :)

Og já, skrifa í gestabokina!

 -Sverrir
Sverrir
5 athugasemdir

Halló

05. september 2006 klukkan 00:28
Góðan daginn...
Sheetttt hvað ég er þreyttur..  Var að koma úr ræktini og var þar með þeim Garðari og Vilbergi. Var þar í ekki nema klukkutíma eða svo útaf ég var alveg að kálast úr þreytu eftir fótboltann. En núna er maður bara að taka það rólega fyrir framan tölvuna... ahhh...
En svo vill svo skemmtilega til að íPoddinn minn er ónýtur.. "Vei" . Og ég var alveg æfareiður þegar það sama gerðist 6 mánuðum eftir það sem gerðist fyrst, en það var það sama sem var ennþá að. :D
En já, núna fer maður bara að huga að matnum ? En já, síðan í gærkveldi fór ég í bíó með þeim Kollu, Hildi, Helenu, Hönnu, Garðari, Óla Degi og Magga. Þar var alveg hellingur af fólki, við fórum á "You, Me & Dupree". Svona "lala" góð mynd, góð á köflum, "lala" á köflum.. :) Svo þarf maður að redda sér áhuga á að eiga myndavél, nenna að taka myndir og hvað þá að kunna að taka myndir? Ég á ekki myndavél, nenni yfirleitt ekki að ferðast með svoleiðis tæki svo er maður ekkert alltof góður að taka myndir.. Því er tilgangurinn með bloggsíðum að sýna sig frá degi til dags í stafrænu formi, eða textalegu formi?
En allavega, ég nenni ekki að skrifa meir í bili, veriði sæl..
Þ.e.a.s ef einhver skoðar þetta! xD

Og endilega skrifiði í gestabókina ef þið eruð hér, svo ekki sé talað um komment!

 -Sverrir
Sverrir
6 athugasemdir

Úff...

03. september 2006 klukkan 06:23
Jæja, núna er klukkan um 1 eftir miðnætti. Ég er akkúrat núna að hlusta á Party Zone þátt kvöldsins, og það er sko alvöru tónlist. Nú fyrir þá sem vilja læra á tónlistarhiem klúbbana þá er línkurinn hér, http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4252370. En já, áðan fór ég til Magga og síðan kom Óli Dagur, þar vorum við bara að spjalla. Nú eftir dágóðan tíma af leiðinleika ákváðum við að fara uppí 10-11, þar keypti ég mér eina Maltextrakt og Maggi sér sælgæti. Síðan fórum við aftur til Magga og ákváðum þá að fara niðrá vídjóleigu, sem endaði með ekki neinu. Þá fórum við bara aftur til Magga. En þá föttuðum við að við hefðum átt að keypa Coke og Mentos, svo leið okkar lá þá í annað sinn niður á vídjóleigu. Það keyptum við okkur Coke og Mentos. Og það er bara mesta okur á kóki sem að hugsast getur! 300 skitnar krónur fyrir kók!
En ég splæsti kók og Óli og Maggi lögðu saman í púkk til að keypa Mentos-ið. Þar á eftir fórum við út og skelltum einum pakka að Mentosi óní kókið, og ég, gott fólk, held að það hafi verið eins sú mesti sóun á 300kr. sem ég hef nokkurntímann eytt. Og eftir að við sulluðum Mentosinu oní gerðist ekkert! Það gaus bara geðveikt hægt. Úff en jæja, síðan lá leið okkar enn og aftur til Magga, þá vorum við bara að gera eitthvað og síðan var maður bara lagður á stað heim eitthvað um 12 leitið. Sem var ömurlegt...
En síðan þegar ég kom heim reif ég tölvuna niður og inní stofu og kveikti á sjónvarpinu. Þar var EKKERT nema ég fann "What lies beneath." á sirkus, sem er reyndar góð mynd. Og þá hafði ég ekkert að gera svo að ég fór að skrifa þetta skemmtilega blogg. En allavega, finito!

 -Sverrir

P.S: Vinsamlegast muna eftir gestabókinni, svo ekki sé talað um að kommenta á bloggin! Þakka yður!
Sverrir
2 athugasemdir

Vei.

02. september 2006 klukkan 18:09
Góðann daginn. Vaknaði snemma í dag og það var ball í gær. Það var geðveikt stuð þar skal ég segja ykkur. Þar hitti maður helling af fólki og svoleiðis, síðan eftir ballið fór ég, Einar, Dagur og Addi í 10-11. Síðan fórum við bara heim, og um leið og ég kom heim sofnaði ég svo það er ekki frá miklu að segja eftir að ég kom heim. Síðan vaknaði ég fyrir sirka, klukkutíma. Ekki búinn að gera mikið, ekki einu sinni að fá mér morgunmat!
En það er saga að segja frá þessum klukkutíma. Ég vaknaði um 12 leitið, fór fram, bauð góðann daginn eins og sannur herramaður, og settist við eldhúsborðið. Þar sá ég Fréttablaðið. Ákvað að kíkja aðeins í það og fann Sudoku þraut aftast í blaðinu. "Fyrir þá sem hafa EKKERT að gera, er Sudoku þrautin á næst-öftustu blaðsíðunni."
En núna var ég að fá símhringingu frá Vilbergo, og verð að flýta mér til hans með íPodd snúru. En já, þetta er stutt og ömurlegt blogg. Sorrý, ég lifi bara verulega ófrásögusærandi lífi, þannig að ég hef aldrei frá neinu að segja svo maður bullar bara eitthvað þangað til að maður er kominn með einhverjar línur!
En jæja, ég ætla að fara. Veriði sæl.

 -Sverrir
Sverrir
2 athugasemdir

Über - Pissilissi

31. ágúst 2006 klukkan 21:33
Jáá.. Í dag er 31. ágúst. Það er búið að vera ömurlegt veður undanfarna 2-3 daga, mikil rigning og virkilega hvasst. Eins og flest af mínum framtíðar-bloggum eiga eftir að vera tel ég þetta og eflaust næstu eiga eftir að verða heldur innihaldslaus. Eins og núna hef ég ekki NEITT að segja. Nema kannski að maður taki eina skák við sjálfan sig, eða spili eitt eða tvö Lúdó?
En allavega, mér skilst að það eigi að vera ball á föstudaginn í næstu viku, í Lundarskóla. Það verður svo sem fínt bara.
Og já, í skólanum í dag, keypti ég mér jórturleður í fyrsta skiptið í alveg nokkur ár held ég. Síðan sá ég Anton og einhverja vini hans sem var verið að busa í VMA. Og það var nú ekki fögur sjón...
Mér HEYRÐIST verið talað um að vinur hans Antons hafi fengið hveiti blandað við vatn í hárið og til að setja punktinn yfir I-ið var skellt bara tómatsósu líka á skallann. Og þess má einnig til gamans geta að ég tók skólabílinn heim úr skólanum í dag. Það var stuð, eða þannig. En þetta blogg finnst mér vera heldur innihaldslaust og ef ég held áfram versnar það bara..
Svo að ég held að ég hætti þessu rugli bara. Góðar stundir!

P.S: Skrifa í Gestabókina?

- Sverrir

Fyrsta Blogg!

30. ágúst 2006 klukkan 01:57
Góðann daginn gott fólk. Úff, lítið að segja akkúrat núna, en þar sem þetta mun vera sennilegast sú þriðja blogg-síðu-tilraun mínverð ég að láta þetta ganga í um smá skeið að minnsta kosti. Jæja, skólinn byrjaði á fimmtudaginn í síðustu viku og það finnst mér barasta fínt (hefur aldrei fundist það áður). Það gæti hreinlega / sennilegast verið útaf því að ég er kominn í 10-unda bekk. Ætla rétt að vona að mér gangi eilítið betur en í fyrra, þar sem að það var pínu "lélegur" vetur, með öðrum orðum ömurlegur. Þar sem að þetta er svona fyrsta blogg og sumarinu rétt í þessu að ljúka, ætti maður kannski að segja aðeins frá liðnum atburðum í sumar. Hið alvöru sumar byrjaði þann 2. júní 2006, sem sagt sumarfrí úr skólanum. Það var bara hið fínasta stuð þangað til að maður fór í unglingavinnuna, eða þá að maður þurfti að vakna enn og aftur. Ég var að vinna frá klukkan 8 - 11.30, sem var reyndar þægilegur vinnutími, en þar sem tímakaup var einstaklega lágt... Þá var þetta heldur "ódýr" dagur. Svo eftir vinnuna, var maður bara að taka það rólega og svona, þangað til frændi minn kom að sunnan, og 28. júlí fórum við austur í Aðaldal í sumarbústað. Það var bara gaman, fátt lítið gert þar. Gott veður. Ekkert hjólafæri. Svo maður var bara eitthvað úti að einhverfast eitthvað. Síðan fórum við heim 4. ágúst og þá fór frændi minn heim það kveld. Síðan var bara ekkert gert þessa síðustu daga fyrir skóla. En þar sem að ég hef aldrei áður skrifað blogg áður er ég nokkuð ánægður með þetta bara. En allavega hef ég fengið nóg í bili. Veriði bless.

- Sverrir
Sverrir
2 athugasemdir